|
Um mig:
![]() Ég heiti Arnar Laufdal Ólafsson og er fæddur 22. nóvember 1969. Árið 1989 kynntist ég Bryndísi Ólafsdóttur og giftum við okkur tæpum sjö árum seinna eða 24. júní 1995. Við hjónin eigum þrjá drengi sem heita Ólafur Arnar Laufdal Arnarsson (fæddur 1996), Davíð Laufdal Arnarsson (fæddur 1999) og Birkir Laufdal Arnarsson (fæddur 2008) Ég starfa sem hótelstjóri á Grand Hótel Reykjavík. Undanfarin ár hef ég starfað sem veitingamaður á Broadway og Teiti veisluþjónustu en ég hef unnið í veitingageiranum síðan ég var 15 ára en þá byrjaði ég að læra þjóninn á Hótel Borg. Með framreiðslunáminu í Hótel og Veitingaskóla Íslands sótti ég líka Fjölbrautarskólann í Garðabæ og kláraði stúdentspróf þaðan árið 1990. Eftir námið þá starfaði ég sem framkvæmdastjóri á Hótel Íslandi (veitingasalurinn). Árið 1995 ákvað ég svo að söðla um og fór að læra fjármálafræði við California State University í Chico og útskrifaðist með BS gráðu í fjármálum um jólin 1997. Í janúar 1998 hóf ég svo störf í Landsbankanum á viðskiptastofu við Laugaveg 77 sem viðskiptastjóri. Í apríl 2000 hóf ég störf hjá SPH á eignastýringasviði en stoppaði þar aðeins í sex mánuði, en þá söðlaði ég um og fór aftur í veitingageirann og keypti skemmtistaðinn BROADWAY af föður mínum. Í febrúar 2011 hætti ég afskiptum af rekstrinum á BROADWAY og seldi minn hlut til húseiganda þ.e. Hótel Íslands ehf. Samhliða veitingarekstrinum hef ég verið eigandi og framkvæmdastjóri að Fegurðarsamkeppni Íslands ásamt því að sinna stöku sinnum ráðgjöf fyrir valda aðila tengdum fyrirtækjarekstri þ.m.t. að kaupum og sölu á fyrirtækjum. Ef þú vilt ná í mig þá getur þú sent mér email á arnar@arnarlaufdal.net eða hringt í síma 897 0915. Bestu kveðjur, Arnar Laufdal Ólafsson |
